Íslenska

Menningarnótt 2010!

Menningarnótt verður haldin í Reykjavík þann 21. ágúst. Mobileguide mun innihalda alla dagskrá Menningarnætur en nákvæm dagsetning á því verður auglýst síðar. Til þess að sjá dagskrá Menningarnætur þarf fyrst að hlaða niður Mobileguide hugbúnaðininum beint í farsímann með því að slá inn get.mobileguide.is. Dagskráin og annað efni er síðan sótt í gegnum hugbúnaðinn með því að smella á Sækja hnappinn í aðalvalmynd Mobileguide.

Mobileguide er ókeypis gagnvirk ferðahandbók sem er sérhönnuð fyrir farsíma. Í Mobileguide má finna upplýsingar um um áhugaverða staði, þjónustu, verslun, dagskrár hátíða o.fl. Einnig er í handbókinni nákvæmt götukort af Íslandi og á því má sjá staðsetningu á öllu því efni sem finna má í Mobileguide. Allt efni Mobileguide er geymt í hugbúnaðinum sjálfum og hann krefst því einungis netaðgangs þegar hann er sóttur eða uppfærður.

Sláðu inn get.mobileguide.is í farsímavafra til þess að sækja Mobileguide

Mobileguide í hnotskurn

  • Mobileguide er ókeypis farsímahugbúnaður fyrir ferðamenn sem á engan sinn líkan á Íslandi.
  • Auðveld, þægileg og gagnvirk ferðahandbók með korti af öllu Íslandi ásamt götuleit og GPS virkni.
  • Yfirlit yfir áhugaverða ferðamannastaði, þjónustu, hátíðir og verslun á Íslandi.
  • Mobileguide geymir upplýsingar í símanum sjálfum og notendur greiða því ekki dýr reikigjöld fyrir notkun og geta nálgast upplýsingar þrátt fyrir að vera utan þjónustusvæðis.
  • Í nýrri gerðum farsíma má sjá eigin staðsetningu á korti og skoða fyrirtæki og þjónustuaðila á því svæði sem ferðamenn eru staddir hverju sinni.

Mobileguide virkar fyrir nær alla farsíma, m.a. iPhone, Nokia, Sony Ericsson, Blackberry, Samsung, Motorola, LG, HTC o.fl.

Stuðningur fyrir Android tæki verður til staðar frá og með sumri 2010.

Athugasemd varðandi niðurhal

Eitthvað hefur borið á því að þeir Íslendingar sem að reyna að sækja hugbúnaðinn lenda í vandræðum þegar hugbúnaðurinn er sóttur með 3G/GPRS tengingu. Vandamálið lýsir sér þannig að eftir að uppsetning hugbúnaðar hefur verið samþykkt þá hættir niðurhalið snögglega oft með skilaboðunum “Aftengist”.  Þetta vandamál má rekja til ófullnægjandi internetstillinga í farsímanum og hefur ekkert með Mobileguide hugbúnaðinn að gera. Til þess að leiðrétta þetta vandamál þarf að sækja nýjar internetstillingar hjá viðkomandi farsímafyrirtæki, eða velja þráðlausa internet (WiFi) tengingu ef að síminn styður það.

  • Með Mobileguide ert þú með hátíðardagskrár, þjónustur, ferðahandbækur og kort á einum stað.


  • Skráðu þig á póstlistann og fáðu Mobileguide fréttaskeyti einu sinni í mánuði.

    Netfang: